0 Comments
Hinn ungi og efnilegi Gjósku Tindur fór í mjaðma og olnbogamyndatöku um daginn og er hann frír bæði af mjaðma- og olnbogalosi. Gætum við ekki verið stoltari af þessum frábæra hundi !!
Tindur byrjaði sýningarferilinn sinn ungur og var hann ósigraður rakka hvolpur árið 2015. Nú er hann að stíga sín fyrstu skref í fullorðinsflokkum og byrjaði hann árið einstaklega vel. Á fyrstu sýningu ársins sigraði Tindur ungliðaflokk með excellent og meistaraefni, endaði hann svo sem 4. besti rakki tegundar á eftir 3 meisturum og fékk sitt fyrsta Íslenska meistarastig. Frábær árangur hjá ársgömlum rakka á gelgjunni. Tindur lauk B-prófi í snjóflóðaleit einungis 15 mánaða og þykir það gífurlegt afrek fyrir svo ungan hund. Nú er verið að þjálfa hann bæði fyrir hlýðni sem hann sýnir virkilega flotta takta í og einnig er stefnt á víðavangsleit með hann. Stefnum við á að vera með got undan þessum gullfallega geðgóða hundi í sumar og geta áhugasamir haft samband á runahe@gmail.com Gjósku Úrsúla, Gjósku Úlfur, Gjósku Úri, Gjósku Úrsus og Gjósku Úlfgrímur hittust á sunnudaginn og léku sér saman. Tækifærið var að sjálfsögðu nýtt og smellt af nokkrum myndum af þessum fallegu Gjósku hvolpum. Erum við virkilega ánægðar með bæði Gjósku Nikitu og ISShCh Gjósku Rosa-Loka í ræktun. Berum við miklar væntingar til þeirra beggja í framtíðinni. Gjósku Úrsúla - Gjósku Úlfur - Gjósku Úri - Gjósku Úrsus - Gjósku Úlfgrímur Gjósku Úri (Brúsi) Gjósku Úlfur (Skari) Gjósku Úlfgrímu (Úffi)
Xkippi okkar tók þátt í keppni ungra sýnenda á degi Ungmennadeildar HRFÍ með vinkonu sinni henni Karen Theu Theodórsdóttur. Stóðu þær sig með stakri prýði en Karen er bara 6 ára framtíðar sýnandi.
Betra geðslag er erfitt að finna en í henni Xkippi og gætum við ekki verið ánægðari með þessa glæsilegu ungu tík. |
Gjósku Ræktun
|